Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
19.10.2008 | 23:46
Tænk Dansk!
Margt hefur verið skrifað um samband Dana og Íslendinga uppá síðkastið - og finnst mér að Íslendingar hafi yfirleitt ekki haft hemil á sér í sínum skrifum, allavega þeim bloggum sem ég hef lesið. Ekki hjálpar það heldur þegar fjölmiðlarnir fara að mála skrattann á vegginn með fréttum eins og fjölmiðlafréttinni um að "vera vísað út úr búð á Strikinu fyrir að vera Íslensk!'" og annað þar fram eftir götum. Léleg fréttamennska með varla einni hlið á málinu, hvað þá smá heimildum um atburðinn yfirleitt. Til að skilja Dani betur, þá stoltu þjóð, ýmyndiði ykkur hvernig margir Danir tóku því þegar D´Anglaterre var selt í hendur "útlendinga", eða Magasin du Nord, Illum Bolighus, og fleyra. Þetta eru stofnanir sem hafa verið þjóðarstolt Dana í áratugi. Frá því að við fengum sjálstæði okkar í 1944 þá hefur Daninn stutt við bakið á okkur á svo margan hátt. Margur Íslenskur námsmaðurinn hefur náð sér í góða menntun í Danmörku og fjöldi Íslendinga hafa tekið sér bólfestu þar í gegnum tíðirnar, bæði í lengri og skemmri tíma og yfirleytt alltaf notið góðvildar Dana.
Danir eru vinir okkar, okkur ber að skilja það. Við verðum líka að skilja að hrun Íslensku bankanna hefur komið illa við marga, ekki bara á Íslandi, heldur víða um heim. Ég held því fram að eitt af séreinkennum Íslendinga sé drengskapur, að viðurkenna mistök og svo snúa bökum saman og vinna að úrlausn. Þannig höldum við reisn.
Kveðja frá PEI, Canada
Samvinna Íslendings og Dana vekur athygli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar