Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Stilling fólks á jarðskjálftasvæðinu er aðdáunarverð!

Ég hef fylgst með fréttum frá Íslandi um þessar náttúruhamfarir, fyrst með óhug og undrun sem svo breyttist í aðdáun á stillingu fólks og jákvæðni. Einnig eru umtalsverð skjót viðbrögð yfirvalda og almannavarnar. Mér sýnist að Íslendingar séu vel undir svona uppákomur búnir, enda er þetta ekki í fyrsta skipti sem jarðskjálftar láta greipar eyðileggingarinnar sópa um þetta svæði.  Finnst þetta hafa verið vel summað af konu sem tekið var viðtal við sitjandi í stofunni sinni í algerri rúst. Konan var augljóslega í sjokki en minntist þó á að þetta væri ekki líkt því eins slæmt eins og hjá veslings fólkinu í Kína og Burma. Svona eru hversdagshetjurnar er það ekki? Óska öllum velgengni við uppbygginguna.

Kveðjur frá Kanada


mbl.is Allt í lamasessi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að höndla söknuð

Kanadamaðurinn er fámáll í dag, þungur á brún þar sem hann horfir út í vorregnið. Stóri bróðir hans dó í gærkveldi. Hann tekur þetta mjög nærri sér, en ræðir ekki um það nema til að segja mér að þetta sé best svona, "nú þjáist hann ekki meir" Síðan er er ólinni snarað á hundinn og hann heldur álútur út í hlýtt regnið með hundinn skokkandi við hlið sér. Nú er tími til að hugsa og takast á við missirinn. Ég býðst ekki til að fara með honum, retriever tíkin er honum nægur félagsskapur á þessa ri göngu.  Þau koma bæði holdvot til baka, regndroparnir perla á andliti hans þar sem hann stendur í dyrunum og biður um handklæði fyrir sig og hundinn. Mér verður hugsað hvort ekki sé eitt eða tvö tár þar á milli en spyr einskins. Þerra andlit maka míns og kyssi hann svo á kinnina. - Saltbragð. -Hann brosir til mín, réttir úr sér, þurrkar hundinum og saman labba þau inní bílskúr. Þar þarf að dytta að ýmsu og ég heyri hamarshögginn dynja. Ég veit að í kvöld verður líðan hans betri  og við förum saman með hundinn á göngu. Ég hugsa gott til glóðarinnar því ég veit ég fæ að heyra um gömul strákapör, ísknattleik á tjörninni við bæinn þeirra og aðrar góðar minningar sem hann á um bróður sinn. Ég hlakka til.

Kveðjur að vestan


Höfundur

Sigríður S. MacEachern
Sigríður S. MacEachern

Nýjustu myndir

  • ...dsc00052
  • My clipart

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband